miðvikudagur, nóvember 22, 2006

Baby Jesus

Jæja jæja jæja...alveg kominn tími á nýtt blogg. Veit nú ekki hvað maður verður duglegur að halda þessu lengur úti...mar er svo assk...latur við að skrifa.

Önnin er nú bara að verða búin ótrúlegt en satt og styttist óðum í prófin....og hey..JÓLIN líka!! ohhhh...er farin að hlakka til. Held reyndar að ég hafi aldrei upplifað önn sem leið svona hratt...kannski af því að ég hef haft meira að gera en áður. Annars er mér búið að ganga ljómandi, búin að skila af mér nokkrum verkefnum og prófum og fá mjög fínt út úr því. Er líka mjög stolt af mér að hafa haldið út alla 5 kúrsana, fannst þetta nefninlega á tímabili dálítið mikið með vinnunni en fékk það ekki af mér að hætta í einum.

Svo er maður bara tekinn að gildna óheyrilega um sig miðja og eitthvað brölt farið að að gera vart við sig þarna inni :D híhí...já maður er víst meira en hálfnaður núna með prósessinn...komin rúma 5 mánuði á leið og hef hingað til ekki geta kvartað :) Fórum í sónar í síðustu viku og vorum ekki lengi að spotta lítinn tippaling :D Það var reyndar ekki eitthvað sem kom okkur á óvart...meira bara staðfesting á því sem okkur grunaði sterklega.

Þannig að samkvæmt áætlun er von á litla jesúbarninu í byrjun apríl ;) Dagskráin breytist sumsé aðeins eftir áramót, er ekki alveg með það á hreinu hvað ég ætla að taka marga kúrsa en hugsa að ég reyni við tvo. Enda ætti ég alveg að ná að pluma mig í fjarnámi ef þess gerist þörf. Ennnn...maður lætur þetta bara ráðast. Spurning um að sprengja sig ekki alveg!

Hinsvegar er ég að fara í próf á morgun og ætti alvarlega að vera að læra núna!
Svo ég hef þetta ekki lengra.

posted by Halla Sif @ 6:38 e.h.   10 comments

10 Comments:

At 14:58, Anonymous Nafnlaus said...

ég bíð spennt eftir litla Jesúbarninu!!!

Lilja (tilvonandi stóra frænka)

 
At 18:42, Anonymous Nafnlaus said...

úúúú baby Jesus baby Jesus.... get ekki beðið :):)

 
At 01:43, Anonymous Nafnlaus said...

Til Hamingju Halla og Jesus, en gaman að vita að það komi lítill Jesus í heiminn. 5 Manuðir þá er ekki mikið eftir.. endilega senda mér bumbumyndir :)

kv Linda og MArk

 
At 23:05, Anonymous Nafnlaus said...

Flott lúkk á nýja blogginu :) Líst vel á þetta!
Já, við erum bara meira en hálfnaðar með bumbuframleiðsluna, eins og þetta leið nú ótrúlega hægt fyrst þá eru vikurnar nú farnajavascript:void(0)
Publish Your Commentr að líða örlítið hraðar. En bara örlítið ;)
Ef ég skyldi nú reynast vera með stelpu, verð ég þá ekki að kalla hana Maríu Magdalenu svo hún passi við Baby Jesus? ;) hahaha

 
At 11:10, Blogger Thora said...

Til lukku í krukku elsku Halla mín. Frábært.
Hlakka til að hitta á ykkur í bænum eða hvar sem er.
Knús frá Mapútó
Þóra gamla

 
At 19:47, Anonymous Nafnlaus said...

Tíhíhíh... Finnst svo æðislegt að kalla litla kút baby Jesus:)

Knús og bumbuklapp...
Þín Bára

 
At 16:25, Anonymous Nafnlaus said...

úúú lítill typpalingur.. veivei... ooo þetta er svo spennandi og skemmtilegt :) Sá verður sætur og mikill hjartaknúsari!!

segi eins og Bára,
Knús og bumbuklapp ;)
eibí

 
At 16:18, Anonymous Nafnlaus said...

Elsku Halla og Jesús,

Til hamingju með litla baby Jesus :) Þetta er alveg magnað og ég er hrikalega spennt yfir þessu!! Fannst fréttirnar samt berast aðeins of hægt og fóru allt of langa leið!! Frétti þetta í gær frá mömmu, hún frétti það frá mömmu þinni og pabba! svo þarf maður að googla þig til að finna þig, hehe;) En innilega til lukku með baby, nú er tilefni til að hittast, maður þarf nú að sjá bumbuna :)

jólaknús,
Sonja frænka

 
At 23:36, Blogger Halla Sif said...

Ohhhhh ég VEIT!!! Svona er nú samgangurinn mikill hjá familíunni:S GLATAÐ!! Ætlaði svo INNILEGA að hitta þig og segja þér fréttirnar en svo bara líður tíminn :S En bíddu...vissirðu ekki um bloggið...hélt ég hefði sent þér slóðina í meili á sínum tíma...!

Samt sko...betra hvernig Ingunn frænka frétti! Hún frétti þetta í gegnum vinkonu Jórunnar Sjafnar sem hún hitti inni í Kringlu af tilviljun!!!!! ...frekar lame ;)

 
At 10:15, Anonymous Nafnlaus said...

Gleðileg jól elsku Halla og Jesus, vonandi gengur allt vel með bumbubúann... vonandi f
aum við að sjá litla kút á næsta ári ef við komum til lands

kv. Linda, Mark og klan

 

Skrifa ummæli

<< Home


DC Templates™


Hallatala