þriðjudagur, ágúst 29, 2006

Bögg í bókhaldinu

Úffff..hvað ég er hræðilegur bloggari. Hef reyndar verið svoldið bissí þessa dagana í þessu skemmtilega bókhaldi hjá okkur. Við eigum að skila ársskýrslu innan MJÖG skamms og erum auðvitað komin á deadline með þetta allt saman. Ég er sumsé á kafi í afstemmingum þessa stundina sem eins og nafnið ber með sér er ekkert sérstaklega skemmtilegt :S Svo erum við þar að auki að kljást við helv....bókhaldsfyrirtækið sem gerði bókhaldið þegar við tókum við staðnum í fyrra en þessir bannsettu svikarar kláruðu ekki að skipta upp fyrirtækinu milli fyrri eiganda og okkar. Eftir sitjum við semsagt með hálfklárað bókhald og fullt af óútskýrðum tölum sem að okkar mati þau eiga að gera grein fyrir. GARG...í þokkabót eru þau með stæla og leiðindi við okkur. Þannig að ef einhvern tímann þið þurfið á bókhaldsþjónustu að halda ekki skipta við Þrep ehf í Skipholtinu! En já...býst ekki við að þið hafið neinn mikinn áhuga á þessu enda ljái ég ykkur það ekki ;)

Nú styttist í að SKÓLINN byrji hjá mér en formleg skólasetning í spænskunni er á föstudaginn. Svo fyndið að vera að fara í Háskólann! Er ekkert búin að ákveða hvernig ég ætla að haga náminu, hvað marga kúrsa ég ætla að taka...etc...en ætli ég láti það ekki bara koma í ljós. Hef MJÖG góðan fíling fyrir þessu og hlakka til að fara að læra eitthvað sem mér finnst gaman :) Í þokkabót er komið ekta svona skólaveður úti, fallegt og kalt veður. Finnst það bara kósý.

Hef lítið annað að segja ykkur svo held ég segi þetta bara gott.

posted by Halla Sif @ 12:40 e.h.   3 comments

3 Comments:

At 16:20, Anonymous Nafnlaus said...

oj bara orðið bókhald hljómar nógu illa fyrir mér en hvað þá afstemming... öss... en já spennandi með skólann! hlakka til að heyra hvernig þú fílar þig :) Já og TAKK FYRIR SÍÐAST bæ ðe vei.

 
At 18:16, Anonymous Nafnlaus said...

Heyrðu...það minnir mig á það að ég á víst ennþá 1 stk. grill heima hjá ykkur :S hmmm...lofa að koma og sækja fljótlega :)

 
At 13:07, Anonymous Nafnlaus said...

jújú.. passar :) við höfum auga með því þangað til..

 

Skrifa ummæli

<< Home


DC Templates™


Hallatala