þriðjudagur, júní 13, 2006

Girl power

Guð hvað ég átti ömurlegt ömurlegt síðdegi í dag!!! Það nebbla sprakk á hjá mér inn í Kringlu, kallinn veikur í rúminu og ótrúlegt en satt ekki hræða á bílastæðinu, enda komið vel yfir lokunartíma. Þá var ekki annað í stöðunni en að sýna fram á hvað maður er hörð tjella svona inn við beinið og skipta sjálf um dekk. Sko ótrúlegt en satt þá hef ég skipt um dekk áður, undir supervision kallsins sem, eins og ég hef minnst á, vill að ég kunni allskonar svona bílahluti. Ég hef by the way skipt tvisvar um dekk! Sem er náttla besta mál því það að skipta um dekk finnst mér að allir kvenmenn ættu að kunna enda getur svona lagað alltaf komið upp á og ekkert alltaf karlmannshönd á staðnum.

Okei...ég byrjaði vel. Náði í tjakkinn og varadekkið og byrjaði að losa skrúfurnar. Var dálítið hissa hvað þær voru fastar helv...skrúfurnar og þurfti að djöflast svolítið mikið á þeim til að losa um þær. Tjakkaði svo bílinn upp og hélt áfram að djöflast á skrúfunum. Okei....þarna hélt ég að skrúfurnar í jeppum væri bara svona fáránlega vel fastar því ég var búin að hoppa endalaust á skiptilyklinum (í nb.hælastígvélum...) og skrúfurnar ennþá ekki lausar. Sjjjiiiiittt hvað ég var pirruð. Þá kom LOKSINS einhver 17 ára dúddi sem bauðst til að hjálpa mér og vá hvað ég var ólýsanlega fegin. Ákvað að játa mig sigraða og kyngja stoltinu enda orðin ógeðslega sveitt og pirruð og fúl. Hann byrjaði að losa og þá komst ég að því að ég hafði ekki verið að losa skrúfur...heldur HERÐA þær! Og þar sem ég var búin að þrjóskast svo lengi við hafði ég hert þær upp í hið óendanlega þannig að þær BROTNUÐU um leið og gaurinn fór að losa þær :( Okei...tvær af fimm brotnuðu en það þýðir að ég verð að fara með bílinn á verkstæði á morgun.

Sumir voru ekki ánægðir með þessar fréttir þegar ég kom heim í dag og bönnuðu mér að snerta bílinn héðan í frá nema bara til að keyra:S Gæti mér hugsanlega liðið eins og meiri whimp!!!

posted by Halla Sif @ 12:22 f.h.   6 comments

6 Comments:

At 10:41, Anonymous Nafnlaus said...

Ó mæ god... þetta er alveg mín versta martröð... guði sé lof fyrir svona vel viljaða dúdda ;) Gott spjall í gær... ættum að gera þetta oftar!

 
At 19:42, Anonymous Nafnlaus said...

Ohhh já ég var einmitt að hugsa það sama. Auðvelt fyrir mig að kíkja á kaffihús á daginn þá daga sem ég er í fríi :)

 
At 21:45, Anonymous Nafnlaus said...

Þá er það díll þú lætur vita þegar þú ert í fríi og við hittumst :)

 
At 00:12, Anonymous Nafnlaus said...

OMG... sé þig í anda!! :) Mér finnst samt gott hjá þér að láta vaða.. ég hefði ekki höndlað það.. hringt í HVAÐA karlmann sem er og NEYÐA hann til að hjálpa mér... ;)

 
At 11:02, Blogger Sunna said...

Ég hugsa að ég hefði nú bara labbað heim og skilið bílinn eftir. Það er sko bara stutt síðan að ég lærði að dæla bensíni sjálf.

 
At 16:47, Anonymous Nafnlaus said...

Játs það er líka það sem ég mun gera héðan í frá, enda komin í lögbann frá öllum bílaviðgerðum

 

Skrifa ummæli

<< Home


DC Templates™


Hallatala