föstudagur, apríl 21, 2006

Blessuð veri rófan mín...

Jamms... ég er að endurupplifa æskuna aftur. Fann gamla bók af múmínálfunum um daginn og ætlaði bara svona rétt að glugga í hana...hemm...er næstum búin með hana :D Þetta eru náttla bara snilldar bókmenntir og það sem mér finnst frábærast er að maður endurupplifir svolítið tilfinninguna sem maður fékk þegar maður las hana sem barn. Ég var sko algjör bókaormur þegar ég var lítil og las oft fleiri en eina bók á dag. Núna er ég orðin pínu húkkt á þessu...langar að lesa fleiri barnabækur. Hver kannast t.d við bækurnar um Pipp...músastrákinn??? Ohhhh...ég ELSKAÐI Pipp.

Við buðum annars sumarið velkomið í gær með því að sækja mótorhjólið sem er búið að vera í geymslu yfir veturinn. Tókum pínu rúnt um bæinn og stoppuðum svo audda á Ingólfstorgi hjá Sniglunum hihihi. Eins mikil bikertjikk og mar er nú orðinn þá get ég ekki sagt að ég sé farin að fíla mig þarna á torginu.. Finnst alltaf e-ð pínu halló við að hanga þarna hjá feitu mótorhjólaköllunum.

En svona í lokin: GLEÐILEGT SUMAR og góða helgi öllsömul.

posted by Halla Sif @ 8:56 e.h.   1 comments

1 Comments:

At 18:48, Anonymous Nafnlaus said...

GLEÐILEGT SUMAR esska og TAKK fyrir síðast og takk fyrir mig :)

 

Skrifa ummæli

<< Home


DC Templates™


Hallatala