mánudagur, febrúar 13, 2006

Valentínusardagur á morgun og ekki seinna vænna en að skella inn einni færslu fyrir þann merka dag...eða hitt þó! Hef aldrei haft neitt sérstaklegar mætur á þessum degi, er þó ekkert illa við hann eins og sumum en fyrir mér merkir hann lítið sem ekki neitt. Æji...ég vil miklu frekar fá rómantík þegar hennar er síst von...ekki e-ð svona fyrirfram planað. Held ég sé afskaplega ódýr kona í rekstri því mér þykir miklu miklu vænna um dúlluleg og fyndin skilaboð heldur en blóm eða gjafir. Ég er þó búin að koma mér upp dágóðu safni af leikföngum sem Jesús minn hefur gefið mér:D Og þá ekki..."þess konar leikföngum" eins og þið perrarnir kannski haldið...heldur bara já...venjulegum leikföngum:D Núna síðast fékk ég t.d. frá honum "Hönd letingjans" hehe..( sem mig grunar reyndar að hann hafi keypt með sig í huga....) En allavega þá er þetta svona jelly hönd sem festir sig á því sem maður nær ekki að teygja sig í!! Semsagt: HÁMARK letinnar :D Nú svo muniði eflaust eftir RISA bílabrautinni sem ég fékk frá honum fyrstu jólin okkar. Sagan af því er reyndar sú að þegar ég var lítil varð ég því miður aldrei fyrir því láni að eignast bílabraut (sem mig langaði geðveikt mikið í) svo Jesús ákvað að bæta upp þetta tap barnæskunnar og gefa mér eina slíka ;) Hún liggur nú inn í geymslu, ásamt flugdrekanum og rafmagnsbílnum!! ahahahaha

Annars erum við reyndar að fara út að borða daginn eftir Valentínusardag :) Þannig er nefninlega mál með vexti að 15.feb er akkúrat ár liðið síðan við keyptum Café Roma svo eigendurnir ákváðu að stefna til fundar á.....Argentínu :D Ætlum auðvitað að ræða bæði ársuppgjörið og frekari stefnumál fyrirtækisins yfir steikinni. mmmmmmmmm

Svo fer nú bara að styttast í að við verðum aftur tvö ein í kotinu því tengdó heldur heim til Spánar eftir tæplega 2 vikur. Íbúðin er gjörsamlega búin að taka stakkaskiptum því feðgarnir tóku sig til og máluðu hartnær alla íbúðina og lögðu loksins gólflistana sem eru búnir að vera á planinu undanfarin 2 ár. Ótrúleg breytingin sem varð við þetta! Það versta er að um leið og maður fer að breyta og bæta langar mann að breyta ÖLLU!!
Svo er tengdamamma búin að fylla frystikistuna af geeeeðveikum spænskum kjötbollum og "croquettas de jamón" sem hún snaraði fram úr annarri erminni. Já maður er búinn að lifa eins og prinsessan á bauninni þessa 2 mánuði! Búin að dekra okkur í spað :)

Hef þetta ekki lengra í bili. Leiter :)

posted by Halla Sif @ 10:29 e.h.   3 comments

3 Comments:

At 12:27, Anonymous Nafnlaus said...

sheise hvað tíminn líður hratt komið ár síðan þið keyptuð... TIL HAMINGJU og takk fyrir síðast :)

 
At 16:39, Blogger Naglinn said...

Til hamingju með ársafmælið!
Aldeilis dugnaðurinn í ykkur skötuhjúunum að reka ykkar eigið fyrirtæki, ég dáist að ykkur.

Kveðja frá Guildford!

 
At 20:42, Blogger Halla Sif said...

Hey takk fyrir :) Gaman að sjá þig hérna inni :)

 

Skrifa ummæli

<< Home


DC Templates™


Hallatala