mánudagur, nóvember 07, 2005

Ný auglýsingaherferð??

Í dag fann ég ástarbréf á kaffihúsinu mínu! Handskrifað á bréfsefni með rithönd sem virtist vera eldri konu. Byrjaði svona: "Elsku ástin mín" Svo kom heil síða af ástarjátningum og hvernig getur þú lifað án mín þegar ég er að veslast upp og tærast án þín elsku gullið mitt, án þín er ég ekkert, ég tekst á flug með þér og þroskast og blehhblehh. "Vona að feimnin verði ekki til þess að við kynnumst aldrei og endilega hafðu samband við mig í síma...eða í gegnum vefsíðuna motframlag.is! Undirritað: "Mótframlagið þitt" Hmmmmm...duló!! Ég varð náttla obboðslega emotional og hringdi strax í 118 til að ath. hver væri skráður en númerið ekki á skrá. Hmmmhmmmm....sýndi náttla Jesús bréfið og við fórum að pæla hvort að væri ekki réttast að hringja í númerið og láta manneskjuna vita að bréfið hennar hefði fundist hjá okkur...Maður vill auðvitað ekki standa í veginum fyrir ástinni sko. En þá yrði það auðvitað geðveikt hallærislegt og vandræðalegt og manneskjan (sem ég ímyndaði mér að væri einmana, eldri kona...) myndi líklegast aldrei þora að koma eftir bréfinu. Svo ég beið þangað til ég kom heim til að fara inn á vefsíðuna. Seinna í dag fann reyndar Jesús ljósrit af bréfinu inn í Morgunblaðinu svo þetta var frekar furðulegt... Eníhú....kíki sumsé inn á síðuna áðan og hvað blasir við mér?! "Viðbótarlífeyrissjóður Landsbankans!!! "Halló ég er að bíða eftir að þú takir eftir mér, mótframlagið þitt." GAAAAAAAAAAAAAD....haldiði ekki að maður hafi verið blekktur af auglýsingaherferð af svæsnustu gerð!! Lúalegt verð ég að segja. Og maður gleypti náttla alveg við þessu eins og api. Minnir mig á ákveðið ástarbréf sem mínar yndislegu vinkonur fölsuðu til mín í MR....;) hahaha...ég virðist vera alveg hárrétta skotmarkið fyrir svonalagað :D...poor foolish gal ;)

Annars er bara allt gott að frétta af manni. Nýkomin úr helgarfríi svona líka fersk og fín og áttum við skötuhjúin okkar fyrsta heila frídag saman núna í gær síðan égmanekkihvenær. Nææææææs Get státað mig af því að hafa horft á mína fyrstu..(..og mjög líklega síðustu..) Startrek mynd um helgina. Minn heittelskaði mútaði mér til að horfa á eina slíka og lofaði mér því að ekki nema u.þ.b 15% af myndinni gerðist í geimnum (...ég er nebbla afskaplega lítið fyrir slíkar myndir). Reyndist það vera nokkuð vel áætlað hjá honum og kom skemmtanagildi myndarinnar mér allnokkuð á óvart. Meira að segja vottur af rómantík í henni ;)

Jæjjjja...la cama me llama :)

posted by Halla Sif @ 10:40 e.h.   6 comments

6 Comments:

At 18:44, Anonymous Nafnlaus said...

dúllan mín, þú og ástarbréf eru náttla alveg æði... hehe...

 
At 16:03, Anonymous Nafnlaus said...

Thurt krutt!;) Otrulega svaesin auglysingaherferd... hljomar otrulega einmanalegt og sorglegt svo madur faer sting i hjartad... en sidan er thetta auglysing! Verid ad nyta ser thad goda i manni... i illum tilgangi:( Me no like it!!!:(

B'ara

 
At 00:25, Blogger Thora said...

hæ pæ, haha, síðurnar okkar bara soldið líkar svona í útliti, alt er vænt sem vel er grænt.
En takk fyrir kvöldið.
Knús Þóra
sela-vi.blogspot.com :)

 
At 12:14, Anonymous Nafnlaus said...

Hæ og takk sömuleiðis. MJÖG forvitnilegt kvöld fannst mér ;) Verð reglulegur gestur á síðunni þinni héðan í frá ;)

 
At 14:15, Anonymous Nafnlaus said...

Jebbs, me also hjá þér :)
Knús Þóra

 
At 14:19, Anonymous Nafnlaus said...

aejiii....en saaaett!! tetta var eitthvad svo innilegt, tú á kaffihúsinu tínu og finnur tetta..... hédan er allt gott ad frétta, gaman ad heyra í tér aftur skvísus!! aquí en Madrid todo bien, estás bienvenida siempre:) Madrid es lo mejor!!

un beso fuerte
elin

 

Skrifa ummæli

<< Home


DC Templates™


Hallatala