miðvikudagur, júlí 27, 2005

Sommer

Jeijjjjj....LOKSINS kom dagur sem ég er í fríi með SÓL!! Var alveg hreint ekki að meika það að vera inni í Kringlu alla síðustu viku frá opnun til lokunar og horfa á þær fáu hræður sem þar voru inni flýta sér aftur út í sólina. Úfff...búin að vera heljarinnar gúrkutíð hjá okkur í kjölfar þessa yndislega veðurs :S Ákvað því síðasta laugardag að slá þessu upp í kæruleysi og hafa bara lokað á sunnudeginum. Enda ekki þess virði að hafa opið í fjóra tíma þegar svona er tíðin. Setti því bara upp litla tilkynningu: "Lokað á sunnudag v/veðurs :)" Var voða ánægð með þetta og hugsaði mér gott til glóðarinnar að liggja og grillast. Vaknaði svo upp á sunnudeginum og viti menn.... ÞOKA!!!!! Garg garg garg. Mar greinilega ekki ennþá búinn að læra af reynslunni og treysta ekki veðurspánni. Og ég nottla búin að afpanta allt bakkelsi svo því fór sem fór: Á Roma var semsagt lokað vegna þoku :S

posted by Halla Sif @ 5:15 e.h.   1 comments

1 Comments:

At 16:49, Anonymous Nafnlaus said...

Æhhhhh:/ No fun is! Þú varst samt í úgglöndum í sólinni svo ég ætla ekki að vorkenna þér oooof mikið;) híhíhíh... Vona að sólin komi aftur:/

 

Skrifa ummæli

<< Home


DC Templates™


Hallatala