Today´s the day
Ég er að HÆTTA hjá KB banka í dag!!! Ó mæ godness!! Langþráð stund runnin upp. Kveð þó vinnustaðinn með blendnum tilfinningum þar sem mjög leiðinlegt verður að kveðja mína helstu samstarfsmenn. Ennnnn...það er nú ekki eins og mar fari langt í burtu og í þokkabót er ég SVO tilbúin í þetta. Skrýtið hvað maður verður alltaf emotional þegar kemur að því að skipta um vinnu. Alltaf hálf dramatískt að skipta svona um stefnu í lífinu. Fær mann virkilega til að meta það að hafa val og möguleikann á því að breyta um farveg.
Í þessum töluðu orðum er einn af bitru kúnnunum nýbúinn að yfirgefa svæðið. Heyrði tuðið í honum hingað sem ég sit, þar sem hann talaði um helv...rotna bankakerfið sem nærist eins og rottur á blóði landans. Skemmtilegt hvað fólk i tekst alltaf að yfirfæra ábyrgðina á sínum gjörðum yfir á bankann. Já það er náttúrulega allt okkur að kenna og við erum vondar hjartalausar manneskjur. Jeeminn eini. Held þetta hafi verið punkturinn yfir i-ið.
Bachelor í gær var BARA skemmtilegur :D Fullt af crrrrazy afbrýðissömum gellum og meira að segja strax komin fram ein svona slutty slut í hópinn...híhíhí. Við Bára erum strax komnar með theory um það hver sé spæjarinn og audda búnar að velja okkur our favorite gal ;)
Bið að heilsa ykkur luvies. Ætla að leggja síðustu hönd á vinnuframlag mitt til bankans. Ííííhaaaaaaa

föstudagur, apríl 29, 2005
3 Comments:
Til hamingju Halla mín! Gott að þú ert komin í eitthvað sem þér finnst æði!! ;) Já,,það er gott Halla"!! hi hi
TIL HAMINGJU esska!! Njóttu kaffihússins í tætlur hon...
Til hamingju :) Loksins frjáls! :)
Skrifa ummæli
<< Home