þriðjudagur, apríl 12, 2005

Nýir vindar blása um

Já þar kom að því að hið óhugsandi hlaut að gerast! Fyrrum mesti antibloggari í heimi bara búinn að svoleiðis liggja á blogginu þessa dagana og hamast við að skipta um og setja upp nýja fína síðu ;) Og bara búinn að skemmta sér svona líka agalega vel. Held þetta hafi eitthvað að gera með niðurbælda sköpunarþörf sem nær þarna að brjótast eitthvað út..hummmmmm. Jámms...svona gerist þegar maður hefur ekkert alltof mikið að gera í vinnunni sinni. Ég segi bara...það er af sem áður var!
Kaffimenningin heldur áfram að blómstra og erum við nokkuð bjartsýn á reksturinn enn sem komið er. Settum fyrstu atvinnuauglýsinguna í Moggann núna á sunnudaginn svo nú er bara að bíða og sjá what comes along. Ferlega fyndið að sjá sína eigin auglýsingu í blaðinu! Er samt hissa á lélegum viðbrögðum so far! Hélt að allir væru bara dæing að vinna fyrir okkur..hehe. A.m.k er ég dæing að byrja að vinna fyrir mig...híhíhí.
Jæja...mikilvægt verkefni bíður mín: Frekari uppsetning bloggsíðu...hemmmmmm.

posted by Halla Sif @ 12:55 e.h.   4 comments

4 Comments:

At 14:05, Anonymous Nafnlaus said...

Hæ fín nýja síðan ;) Ég var nú soldið farin að örvænta með hina,,, ekkert alltof oft uppfærð hehe ;) Og ég er sko alltaf að kíkja þar sem ég hangi hér yfir verkefnum og ritgerðum á netinu ALLAN daginn :/

 
At 14:05, Anonymous Nafnlaus said...

Hæ elsku Höllulingur minn!:) Rosalega er ég ánægð með að þú skulir vera komin með blogg aftur;) híhíh.

Knúúúús!
Bára

 
At 14:09, Anonymous Nafnlaus said...

VÁ BÁRA!!!! Við skrifuðum á SÖMU mínútu!!!!!!

 
At 14:50, Anonymous Nafnlaus said...

Jammmm....ég býst við að þetta verði nýja forgangsverkefnið mitt í vinnunni...svona miðað við vinnu"álagið" þessa dagana...andvarp :S Mun leggja allan minn metnað í þessa nýju síðu ;)

 

Skrifa ummæli

<< Home


DC Templates™


Hallatala