Persónunjósnir borga sig stundum ;)
Já! Það var eins og við manninn mælt að gullni drengurinn var... "flagð undir fögru skinni" ef ég á að taka svoldið stórt til orða. Mín nýtti sér aðstöðu sína í bankanum og kíkti aðeins á persónuleg mál drengsins og.....já...hvað get ég sagt! Persónunjósnir mínar urðu til þess að við ákváðum í snarhasti að ráða hann EKKI! Svo ég varð vægast sagt MJÖG desperat og vonsvikin eftir á...snökt! Eeeeennnnn.....ekki var öll von úti því í gær hringdi í mig þessi líka ENGILL sem er ENNÞÁ betri en gulldrengurinn. Hefur meira að segja unnið áður á Roma og gerir snilldargott kaffi. Í þokkabót er þetta stelpa sem ég var búin að taka eftir löngu áður en við keyptum. Mér fannst hún alltaf svo frábær e-ð að ég hugsaði með mér að EF ég ætti kaffihús myndi ég hiklaust vilja þessa :D Já....örlögin komu og bönkuðu upp á ;)...hihihi
Vitiði svo hvað!?!?! ....Á föstudaginn er....S-Í-Ð-A-S-T-I dagurinn minn í bankanum!!!! wwwwwíííííííhaaaaaaaaaaa :) GÆTI ekki verið glaðari með þetta allt saman! Er líka SVO glöð yfir því að vera loksins að fara að gera eitthvað sem mér finnst actually GAMAN :)
Bið að heilsa ykkur í bili elskurnar. Ciao tutti

þriðjudagur, apríl 26, 2005
0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home