mánudagur, júní 27, 2005

Mömmur dauðans

Í dag er orðum mínum beint til allra minna yndislegu vinkvenna sem annaðhvort eru mæður eða munu e-n tímann verða mæður. Í guðanna bænum aldrei aldrei aldrei gera eftirfarandi....né láta ykkur einu sinni detta það í hug!!!!:

1) Setjast inn á kaffihús án þess að kaupa neitt og gefa brjóst
2) Setjast inn á kaffihús og skipta um bleyju.

Já í dag fyllti kornið mælinn!! Ég hef smám saman verið að safna upp nettum pirringi gagnvart ungum mæðrum (já sorrý en hingað til enginn pabbi..) sem halda að kaffihúsið mitt sé griðarstaður fyrir ofangreint! Svo er EKKI!!! Neiónei. Hér með segi ég öllu slíku stríð á hendur og mun operation mummies hefjast á morgun með skilti sem fer upp á vegg. Sorglegt að þurfa virkilega að taka það fram við fólk að á veitingastað/kaffihúsi SKIPTIR MAÐUR EKKI Á BÖRNUM!!!! Garg. Í dag sko (..og ekki í fyrsta sinn...) komu inn mæðgur ásamt litla ömmubarninu. Fljótlega finn ég skrýtna og not very pleasant lykt. Veit svo ekki bara fyrr en stelpan vippar barninu upp í sófann og byrjar að skipta á KÚKABLEYJU, hreinsa og svona allt tilheyrandi..eins og ekkert væri EÐLILEGRA. Og kúnnar á borðunum beggja vegna!!!!! Sko...ég get sagt ykkur að ég fékk nett taugaáfall. Arkaði til þeirra og sagði þeim að þetta vildum við alls ekki að væri gert hér enda frekar ógeðfellt á matsölustað!!!! Hvað er eiginlega að spyr ég! Það eru í þokkabót klósett í 100 m fjarlægð með fínni skiptiaðstöðu! En neinei..."barnið mitt kúkar náttla rósablöðum þannig að best að gera þetta bara hér"...örugglega öllum sama! Meeeen...

Annars eru bara 6 DAGAR í Spán!! Shit maður....tíminn ekki lítið fljótur að líða. Ferðin annars voða lítið plönuð hjá okkur....lendum bara vonandi ekki í hitabylgjunni sem liggur yfir N-Spáni þessa dagana :S 40stig í Bilbao síðast þegar ég vissi :S

posted by Halla Sif @ 10:10 e.h.   2 comments

2 Comments:

At 11:57, Anonymous Nafnlaus said...

Halla mín ég lofa lofa lofa að vera ekki ein af þessum ;)

 
At 15:09, Anonymous Nafnlaus said...

Jeminn eini, ég held nú að manni dytti ekki í hug að skipta á kúkableyjum (eða öðruvísi bleyjum...) inni á kaffihúsi! Hvað er eiginlega að fólki? Varla myndi þetta fólk vilja að maðurinn á næsta borði kúkaði í kopp meðan hann væri að drekka kaffið sitt?!?

 

Skrifa ummæli

<< Home


DC Templates™


Hallatala