Long time no seen
Góðan daginn gott fólk :)
Sit heima og bý mig undir það að fara út í garð með Lorenu :) Alveg yndislegt, ekta maíveður úti og enn yndislegra að geta notið þess en vera ekki innilokaður inn í e-m banka... muuuaahhhahahaaaa :D Var að klára hin daglegu morgunverk á Roma en þangað fer ég alltaf snemma morguns til að smyrja, útbúa súpun og undirbúa opnun dagsins. Ekki alltaf auðveldast í heimi að vakna þar sem ég bara virðist ekki geta farið að sofa fyrr en um tvöleytið allar nætur! Er því komin með fallega bauga undir augun og laða væntanlega ekki að mér marga viðskiptavini svona snemma morguns!
Er búin að vera á námskeiði í bókhaldi í vikunni og nú er sko komið að því að láta hendur standa fram úr ermum og massa þetta. Já...mér líst bara nokkuð vel á þetta skal ég segja ykkur. Ég hef nú aldrei getað talist til helstu aðdáenda bókhalds...svo vægt sé tekið til orða...eheemmm...en núna bara fannst mér þetta nokkuð skemmtilegt!! Náði allavega að halda mér vakandi allt námskeiðið...sem er stórt skref frá því á sínum tíma í skólanum..hehehe. Og ég er ekki frá því bara að mér eigi eftir að farast þetta nokkuð vel úr hendi! Held það blundi e-ð bókhaldsgen þarna langt langt niðri!! hahaha
Kíkti í gær með Milenu vinkonu á opnun Olivers, a.k.a gamla Kaffi List. Þrátt fyrir hræðilegt nafn að mínu mati er þetta þrælflottur staður og ég er ekki frá því að þeir eigi eftir að taka stóran kúnnahóp frá Vegó. Allavega mjög trendí staður og töff hannaður. Jamms....nostalgían blundaði í mér í gær þegar ég sat á gamla staðnum mínum enda margt og mikið sem gerðist þar á sínum tíma ;) mmmmmm.....memories good old good old!!
Heyrðu...ætla svoleiðis ekki að hanga lengur inni fyrir framan tölvuna. Býst nú reyndar ekki við að verða aktíf í blogginu í sumar en one never knows. Bið að heilsa og eigiði góðan dag. Og í guðanna bænum þið sem eruð að vinna reynið að sleppa sem fyrst :D

föstudagur, maí 27, 2005
0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home