sunnudagur, maí 08, 2005

Helgarblaður

Komið sunnudagskvöld og mín búin að eiga rólegan og ósköp yndislegan dag. Fór og gerði vettvangskönnun á Kaffitár (haha nú get ég alltaf notað þetta sem afsökun fyrir að fara á kaffihús) og sá að þeir eru barasta ekkert að gera betur en við...hahaha ;) Workaði out í Baðhúsinu (jáhá..nú á sko að taka á því af KRAFTI), heimsótti svo strákana mína á Vegamótum (enn önnur vettvangskönnun...) og var svo að koma úr vikulegum helgardinner á Fjölnó.

Ekki búin að vera mikið fyrir framan tölvu þessa vikuna en nú er maður sestur á stól að reyna að setja upp bókhald fyrirtækisins...tataratammmm. Hugsa nú reyndar að þetta verði ekkert svo flókið þar sem þetta er lítið fyrirtæki og svona en mikla það svoldið fyrir mér að fara að setja mig inn í þetta. Við fengum nebbla reikninginn frá endurskoðandanum um daginn og fengum bara sjokk með STÓRU essssssi. Virðist sem þessir endurskoðendur séu með helv...hátt tímakaup...ehemmmmm. Svo nú eru Halla og Jesús búin að bretta upp bókhaldsermarnar og ætla að massa dæmið sjálf!

Get sko sagt ykkur það að mér líður YNDISLEGA að vera hætt í bankanum. No offence KB...en mér líður bara eins og ég sé frelsuð! Nú er formlega búið að tilkynna innan bankans að ég vann sölusamkeppnina á meðal þjónustufulltrúa og hætti því með stæl. Er ánægð með það ;)
Búin að eyða vikunni í ýmis konar stúss og útréttingar og er SVO að fíla þetta með að ráða mér sjálf. Planið hjá mér er nebbla að taka því rólega í sjálfri afgreiðslunni á Roma í maí og nota tímann meira í skipulagningu og ýmis konar bossa dunderí :D Svo kem ég inn í þetta á fullu í júní og verð að afgreiða frá kl. 9 og e-ð framan af degi eftir þörfum.

Núna á fimmtudaginn er svo þriðji Rodriguez bróðirinn að flytjast til Íslands með kærustunni og fer að sjálfsögðu beint í eldhúsið á Vegó ;) Mamma og pabbi þá orðin alein á Spáni...litlu greyin:( Það verður líf og fjör hérna í Teigunum því þau ætla að flytjast til okkar núna fyrst um sinn eða þangað til þau finna íbúð.

Jæjjjjja bið að heilsa ykkur í bili.

posted by Halla Sif @ 10:00 e.h.   3 comments

3 Comments:

At 23:02, Anonymous Nafnlaus said...

Það er ekkert lítið að gerast hjá ykkur þessa dagana :) hlakka ekkert smá til að komast í bæinn og í hringiðuna með öllum aftur, þá getur maður fylgst betur með því við verðum í göngufæri ;) hehe

 
At 09:49, Anonymous Nafnlaus said...

Til hamingju með að vinna keppnina í KB banka - þú ert soddan dugnaðarforkur! :D

 
At 12:23, Anonymous Nafnlaus said...

Flott hjá þér, gella;) hehe! Til hamingju með að hafa unnið þetta;)

Hey, vó... verða þau lengi hjá ykkur brósi og kæró? Greyið foreldrar hans Jesú! Ætli þau flytjist ekki hingað líka;) Sjáumst á eftir, darling;)

Bára

 

Skrifa ummæli

<< Home


DC Templates™


Hallatala