fimmtudagur, júlí 21, 2005

Komin heim

Komin hjemme frá yndislega Spáni. Ferðin var ææææææææðisleg í hreint alla staði. Hittum svo marga, vini og familíu og sáum svo marga staði að það myndi fylla heila bók. Ég er gjörsamlega kolfallin fyrir Norður Spáni og er ekki frá því að þetta sé eitt fallegasta svæði sem ég hef komið á :) Grænt, grænt og aftur grænt og endalaus fjöll og lítil krúttleg fjallaþorp. Fórum m.a. sumarhús familíunnar sem er í einu af litlu krúttþorpunum og vorum þar í þriggja daga afslöppun. Síðan var auðvitað farið nokkrum sinnum á ströndina, kíkt í búðir, bæjarrölt, á djammið, tapasrölt, á markaði og í endalaust margar heimsóknir. Fórum reyndar líka í verslunarferð til Andorra þar sem við shoppuðum fyrir mótorhjólið. Mæli reyndar EKKi með að fara þangað því bæði er borgin ekki skemmtileg og svo eru Andorrubúar eitt leiðinlegasta fólk sem ég hef lent í!! Svo var ferðin náttla toppuð með brúðkaupinu þar sem Sex and the city kjóllinn var vígður. MEN...held ég hafi toppað brúðurina...hehehe ;)

Síðan kom maður bara beint heim í vinnu, vinnu og endalausa vinnu og ómægod hvað það var erfitt að segja skilið við fríið. Erum bæði gjörsamlega veik í að fara aftur út!! Bót í máli að maður er að koma heim í skemmtilega vinnu :):) Og svo er bara rúmur mánuður í að Jesús hætti í helv...kreisínessinu á Vegamótum og komi á fullt á Roma :):)

posted by Halla Sif @ 10:23 e.h.   0 comments

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home


DC Templates™


Hallatala