Ein í kotinu
Díjsus maður hvað ég er búin að vera löt við að skrifa inn á þetta blogg! Það sem er kannski helst að frétta er að við erum orðin ein í kotinu á nýjan leik :) Það er alveg einstaklega ljúft get ég sagt ykkur...híhí...orðin pínu þreytt á spánarkommúnunni ;) Svo munar líka alveg um að fá plássið aftur...
Þessa dagana er ég annars bara að vinna upp á hvern einasta dag svo það er ekki mikið líf fyrir utan kaffihúsið hjá mér. Núna er haust/skólatörnin að byrja og mar sér það alveg greinilega á veltunni:D Ætlum einnig að fara út í smá breytingar með haustinu, ekkert drastískar svosum, heldur bara að koma með nokkrar nýjungar inn, svosem eins og salat og nýja tegund af panini. Erum byrjuð að auglýsa til verslinganna með skólatilboði sem birtist í fyrsta tbl. skólablaðsins. Svo það er allt að gerast ;)
Átti ammli um daginn og get ekki neitað því að mér finnst tuttuguogsex vera doldið...mikið...! Tók mér tveggja daga frí (...til að jafna mig....hehe:) og átti mjög næs dag. Fór á Roma til að fá mér morgunkaffið og þar var ég dregin inn í eldhús, fékk kokteil og ammlissönginn sem var sunginn hástöfum :D Held í alvörunni að ég sé með besta staff í heimi! Ekki nóg með þetta heldur fékk ég líka pakka!! Var ekkert smá hrærð. Litlu dúllurnar mínar :) Fór svo út að borða um kvöldið á Galileo með Jesús sem var voða skettlegt og kósý.
Heyriði annars...Endilega kíkiði á mig inn í kaffi :) Læt þetta bara duga í bili.

föstudagur, ágúst 19, 2005
3 Comments:
Hey cute stuff. Var að koma frá þér... sjæse, fullt að gera hjá þér! Liking it! Já, mér lýst líka vel á staffið þitt;) Þú ert góð að spotta flott fólk í vinnu... híhíh. Við Elva og Assi fylgdumst stolt með þér að vinna í fyrirtækinu þínu. Þú ert dulle. Loves yous... Bára
hihi já...KREISÍ að gera í dag!! Hefur sko aldrei verið svona mikið að gera á virkum degi áður...og akkúrat þegar þið komið þannig að ég gat ekkert sest og tjattað :(
Hey girl...... You no write no more? :/ Bára
Skrifa ummæli
<< Home