Haustið komið
Jæja...þá held ég að við getum reitt okkur á að haustið sé komið for real. Sem ég get ekki verið annað en bara ánægð með því mér hefur alltaf fundist það svo kósý tími. Við Jesús erum bæði í fríi í dag og er planið einfaldlega að njóta þess í botn að gera ekki neitt nema að vera heima í kósýheitum, lesa, borða og kúra:) Undanfarnar vikur höfum við verið að vinna einstaklega mikið og er þetta frí því mjög kærkomið. Nú fara reyndar hlutirnir aðeins að breytast til batnaðar því við erum búin að ráða til okkar strák sem ætlar að taka allar helgar að sér :D Það þýðir sumsé að við fáum nánast frí um hverja einustu helgi :D:D Húrra fyrir því!!
Annars hefur heldur lítið drifið á daga manns síðustu vikur. Síðustu helgi var reyndar árshátíð Klúbbsins og skemmtum við okkur þvílíkt vel undir stjórn Nefndarinnar, a.k.a Jóhanna og Sigurrós. Stóðu þær sig hreint út sagt frábærlega við undirbúning og hittu í mark með þemanu "Sex and the city" Fengum öll okkar skammt af fíflagangi yfir daginn og toppuðum svo kvöldið með fáránlega flottu Sex and the city-spili a la nefndin. Svo var auðvitað hinn árlega "lagaleikur Assa" á sínum stað, auk hins nýja "Hversu-vel-þekkir-þú-vini-þína-leik... Maður fer svona að velta fyrir sér hvort Assi sé virkilega á réttri braut í apótekinu.....!? Jamms...get ekki annað sagt en það að við Elva eigum ekki sjö dagana sæla framundan við skipulagningu árshátíðar 2006. Heldur erfitt að toppa það sem er fullkomið....
Svo er Bára bara farin út til Wales að læra...úfffffala...er svona rétt búin að átta mig á því að hún er ekki í fríi heldur flutt út!!! Sendi þér strauma Bára mín.... :)
Svo að lokum þá var ég að setja inn nýjan link hér til hliðar með MYNDUM :) Reyndar fátt um feita drætti þar...enn sem komið er...en með...lækkandi sól mun ég óðum setja inn fleiri myndir :)

sunnudagur, september 18, 2005
2 Comments:
JEIJ! Minns glod ad sja ad Halla min er farin ad tja sig her eftir langa pasu;) Lyst vel a kurudag hja ther:) Eg er loks buin ad kynnast einhverjum her, hitti bandariska stelpu sem heitir Meghan. Vid hofum verid ad rolta saman um litlu Bangor:) hihi. JEIJ! Hafdu thad gott, Hedlie min... ;*
klukk :)
Skrifa ummæli
<< Home