þriðjudagur, september 27, 2005

Klukkið

Jamm jæja...best að svara klukkinu :)

1) Ég get hreyft hægri helming efri varar án þess að hreyfa restina af vörinni. Hingað til hefur þessi hæfileiki ekki gagnast mér mjög mikið en verður til þess að ég lít út eins og önd....sumum til mikillar skemmtunar!

2) Mér finnst meiriháttar að fara ein á kaffihús og get setið þar tímunum saman við að lesa eða skrifa bréf.

3) Ég sofna eiginlega alltaf yfir öllum bíómyndum. Hef t.d. sofnað oft í bíó og svaf einu sinni heila mynd. Finnst það þægilegast í heimi að sofna fyrir framan sjónvarpið...Ég er þ.a.l ekki skemmtilegur vídjóvinur :D

4) Ég verð endalaust pirruð þegar hlutir detta...veit ekki af hverju en pirrar mig...

5) Ég fæ mér alltaf 3 stk af tyggjó í einu. Sem þýðir að ég klára heilan tyggjópoka á 2 dögum. Og nei...hef ekki fundið fyrir laxerandi áhrifum Extra....

Garg.....það óþolandi við leikinn er að finna manneskju sem ekki hefur verið klukkuð...sem er barasta ekki hægt lengur því allir eru búnir að vera klukkaðir hundrað sinnum :( Svo þekki ég svo fáa bloggara...:( Skák og mát. Hmmmm...jú...ég skora þó á hana HÓFÍ mína til að segja okkur frá fimm skemmtilegum useless staðreyndum um líf sitt :D Og...Jóhanna, Bára, Elva og Sigurrós...klukk aftur....:S

posted by Halla Sif @ 9:13 e.h.   1 comments

1 Comments:

At 23:15, Anonymous Nafnlaus said...

Tek undir áskorunina til Hófíar, komin tími á að hún fari að vekja bloggið sitt úr eilífðardvalanum! ;)

 

Skrifa ummæli

<< Home


DC Templates™


Hallatala