sunnudagur, október 16, 2005

Jólin...eða hvað?

Einhverjir kvörtuðu yfir að jólin væru óvenju snemma á ferð í ár. Þau eru víst komin í Ikea og jújú einnig hérna í Teigunum. Við ætlum að borða jólamatinn í kvöld! Hér eru spænskir menn á fullu inn í eldhúsi við að elda hrygginn og sósuna. Svosem ekkert slæmt við það að borða hamborgarhrygg í kveld...en ég vil taka það fram að hugmyndin var ekki mín :D Fyrir mér er hamborgarhryggur beintengdur við aðfangadagskvöld. Samt dáldið fyndin fusion eldamennska í gangi þar sem meðlætið er hvítlauksbrauð og kartöflur alioli :D

Eigum í stríði við reykynjara dauðans. Kvikindið fer í gang í hvert e-i-n-a-s-t-a skipti sem við eldum og ég vil taka það fram að hann er ekki einu sinni inn í sjálfu eldhúsinu. Lítur kannski út fyrir að við séum í e-i brjálaðri brælu alltaf endalaust en það er nebbla alls ekki málið! Smá gufa bara og tækið strax farið að væla. Þurfum núna alltaf að elda með útidyrahurðina opna! Ég er samt ekki á því að skipta þessu út því maður lifandi hvað þessi á eftir að bjarga manni ef einhvern tímann á eftir að kveikna í. En þá bræðir hann örugglega úr sér af áreynslu samt....

posted by Halla Sif @ 7:35 e.h.   6 comments

6 Comments:

At 10:25, Anonymous Nafnlaus said...

Hey honey! Thad virdist vera brjalud eldamennska i gangi tharna hja ykkur! Vodalega erud thid dugleg ad elda:) hihi. Vildi ad eg vaeri svona dulle! Va, hamborgarahryggur! Minns langar i!!!!

 
At 10:25, Anonymous Nafnlaus said...

Ehm, thetta var Bara;)

 
At 15:32, Anonymous Nafnlaus said...

ohhh hvað ég hlakka til jólanna, fara að skreyta og svona... jeij verður gaman þetta árið held ég.

 
At 16:33, Anonymous Nafnlaus said...

Jóhanna mín þú ert nú alveg að bræða úr þér hvað varðar jólin er það ekki :D Hefur baby Jo þar e-r áhrif...hmmmmmmmm????

 
At 12:50, Anonymous Nafnlaus said...

ég þarf náttla að vera helst búin að sem mestu áður en baby jo kemur, allavegana baka og svona hehe þannig það verður orðið jólalegt hjá mér í byrjun des hehe

 
At 23:21, Anonymous Nafnlaus said...

Og Bára hér aftur... Er meiri nörrinn, var fyrst NÚNA að taka eftir myndunum þínum!!!! Gooood! Skemmtilegar!!!:) En ég verð að segja... mér finnst nú að þú eigir að minnast á mig sem einn af þínum fastakúnnum... hmmmmm;) hehehe. Ég sætti mig við að vera fimmti besti kúnninn:) híhíh. Heldurðu að það passi? Ef við tökum ma, pa, Jórunni og Lilju Rut út úr dæminu?;) Veit náttla ekki með brósa þinn. Ok... sætti mig við að vera sjötta!;) híhíh... Heyrumst fljótt sætust:* Knúúúús!

 

Skrifa ummæli

<< Home


DC Templates™


Hallatala