mánudagur, október 10, 2005

Helgarfrí

Ég var í helgarfríi þessa helgina og NB: Fékk BÁÐA dagana í frí :) Það var virkilega lúvlí. Hlakka til þegar svona helgar verða að reglu en ekki undantekningu :D ..Vonandi ekki svo langt í það.
Það sem ég gerði af mér var í stórum dráttum þetta: Borða, lúlla, taka til, Baðhúsast og horfa á sjónvarpið....hemmmm Já....það er sannarlega áhugavert að blogga um líf mitt upp á síðkastið :D Ég var nú að vísu mjög ánægð með helgina, var vægast sagt myndarleg í húsmóðurstörfunum og náði að hvíla mig vel. Íbúðin alveg skínandi hrein svo mar fær víst plús í kladdann fyrir það. Annars erum við Jesús orðnar svo miklar sófaklessur eftir að við fórum að fá frí öll kvöld að það er hrikalegt!! Höfum bara ekki í okkur þennan viljastyrk að rífa sig upp og fara í göngutúr, sund eða annað álíka helþí. Er eimmmmmitt að bíða eftir að kl. verði 22.45 því þá ætlar Skjár einn að hefja endursýningar á Sexandthecity takk fyrir takk. Vúhúúú...og ég sem sá ekki meirihlutann af fyrstu syrpunni :D Ætla meira að segja að reyna að fá sófaklessuna mína í lið með mér að horfa. Hann hefur sko ekki kynnst þessum þáttum ennþá og ég held bara að hann hafi gott af því að horfa.

Haldiði svo ekki að ég hafi hitt tvær af gellunum úr Bachelor um daginn!!! Ahahaha...það var þessi mjóróma sem er náttla BARA fyndin og þessi væmna frá Ísafirði. Komu saman á Roma til þess eins að kíkja í blöðin...og pöntuðu ekki neitt skömmin atarna. Virðist því ekki vera sem þær haldi áfram greyin....

Eníveis...var ég búin að minnast á að það er frábært kaffi á Roma??? ....Bara svona ef þið vilduð kannski heimsækja mig......

posted by Halla Sif @ 10:20 e.h.   1 comments

1 Comments:

At 18:28, Anonymous Nafnlaus said...

Allt of langt síðan við höfum hittst..þarf greinilega að kíkja í kaffi til þín á Roma darling.. ;)

 

Skrifa ummæli

<< Home


DC Templates™


Hallatala