Lónlíness
Jæja..nú er mar orðin grasekkja í fáeina daga. Jesús þurfti skyndilega að fara til Spánar í dag til að vera viðstaddur jarðarför svo ég er ein í kotinu. Sniff...svo tómlegt eitthvað...höfum aldrei verið svona langt í burtu frá hvort öðru :S
Í dag gjörsamlega massaði ég vinnuna. Ég var nebbla ein þar sem ekki náðist að fá neinn að vinna og var ekki lítið stressuð. Þessa dagana er jú stemningin farin að aukast þokkalega og yfirleitt alltaf brjálað að gera :) Kvarta ekki yfir því ;) En með góðri skipulagningu þá náðist þetta alltsaman og dagurinn reddaðist.
Annars hafa síðustu vikur aðallega snúist um jólastúss, hvort sem það er fyrir heimilið eða kaffihúsið. Jú maður er svona að reyna að vera húsmóðir mitt í öllu stressinu og baka, taka til og snurfusa húsið fyrir jólin ;) Tala nú ekki um þar sem tengdó ætlar að koma og vera hjá okkur yfir jólin :) Já...það kom semsagt í ljós í dag að þau ætla að koma yfir jólin og vera hérna (vonandi) í 1-2 mánuði. Sem ég er hæstánægð með, frábært að Jesús og familía geti loksins verið öll saman á jólunum (hefur ekki gerst í hvað...5 ár held ég). Æjjj svo eru þau svoooo miklar dúllur!
Hef þetta ekki lengra, held varla augunum opnum lengur.

miðvikudagur, desember 14, 2005
0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home