mánudagur, nóvember 21, 2005

Letihaugur

Já óhætt að segja að letin hafi tekið völdin á bloggsíðunni minni :S En best að öppdeita aðeins síðustu daga. Átti ágætis helgi þó hún hafi á endanum snúist upp í vinnu í Kringlunni. Gad...merkilegt hvað fólk er orðið kreisí um helgar þarna uppfrá.
Á föstudaginn fór ég á 10ára grunnskóla rejúníon Álftamýrarskóla og var það skemmtilega forvitnileg samkoma ;) Virkilega gaman að hitta fólkið aftur enda margir úr þessum hóp sem maður hefur hreint og beint ekki séð í 10ár. Gaman að sjá hvað sumir hafa breyst óendanlega mikið og sumir bara ekki neitt!! Skallar og bumbur farið að koma í ljós hjá fáeinum en annars er mannskapurinn þó nokkuð mikið eins og maður man eftir honum :) Var þó ekki í djammgír það kvöld og fór heim á "skikkanlegum tíma" ;)
Á laugardaginn átti hún Lilja Rut frænka mín og pæja með meiru svo 15 ára afmæli (jesús...talandi um að tíminn líði...) og í því tilefni fórum við familían út að borða á Maru. Mæli EINDREGIÐ með þeim stað! Virkilega töff og kósý og maturinn frááábær. Alls ekki dýr og þjónustan mjög góð.
Í gær skelltum við skötuhjúin okkur svo í bíó á hina margumtöluðu mörgæsamynd. Múúúúúúúúúúúúúúú.....ÆÐISLEG!!!!!! Mörgæsirnar eru SVOOOO sætar svona kjagandi og dettandi út um allt. En burtséð frá því hvað mörgæsirnar eru HRIKALEGA sætar þá er myndin líka mjög fræðandi og bara virkilega skemmtileg. Gerði það að verkum að við komust í ofboðslegt dýralífs mood og var kvöldið toppað með einni góðri David Attenborough mynd!!! ahahhahahahaha :D
Hef þetta ekki lengra í bili. Síjúleiter

posted by Halla Sif @ 9:50 e.h.   3 comments

3 Comments:

At 21:10, Anonymous Nafnlaus said...

æji snúllurnar.. þið eruð algjörar mörgæsir! ;)

 
At 12:34, Anonymous Nafnlaus said...

Heheheeheh:) Thurt krutt! Thu verdur lika ad kikja a astralska gaurinn, hann segir svo skemmtilega fra!:D hihi. Hlakka tila sja thig! Bara rumar 2 vikur!!!!:D

Bara

 
At 23:41, Anonymous Nafnlaus said...

Hmmmm...ertu að tala um krókódílamanninn?? Já bara 2 VIKUR!!! Ótrúlegt hvað tíminn líður!

 

Skrifa ummæli

<< Home


DC Templates™


Hallatala