sunnudagur, janúar 01, 2006

Nýtt ár

Ég vil nú byrja á því að þakka ykkur öllum fyrir árið 2005 og vona að þið séuð sátt við atburði og ákvarðanir ársins :) Mér finnst nú alltaf svolítið erfitt að kveðja árið, situr alltaf í mér einhver nostalgía sem gerir það að verkum að um áramót er ég bæði glöð en hálf sorgmædd í senn. Þegar ég var lítil tók ég alltaf massíft grátkast á gamlársvöld þegar við fjölskyldan horfðum á gamla árið fara burt í Ríkissjónvarpinu. Ég man sérstaklega eftir drastískum viðbrögðum hjá mér árið 1985 þegar ég var 6 ára en þá tók ég sunnudagaskólabókina mína og krotaði í bræði yfir ártalið ´86 sem þar var skrifað. En þetta hefur nú sem betur fer aðeins elst af mér...er hætt að gráta og svona..hehe...en eftir situr alltaf pínulítil eftirsjá eftir gamla og góða árinu :)

Svona í heildina á litið er ég afskaplega ánægð með árið. Það sem án efa stendur upp úr eru kaup okkar Jesús á Café Roma í febrúar sem var með eindæmum besta ákvörðun ársins. Virkilega góð tilfinning að láta "gamlan" draum rætast og gera það sem mann virkilega langar til að gera. Annað sem trónir einnig á toppnum er Spánarferðin okkar í sumar sem var hreint og beint yndisleg. Svo gaman að fá loksins að sjá heimaslóðir Jesús og hitta vini hans og fjölskyldu. Get með góðri samvisku sagt að þetta hafi verið akkúrat það sem sambandið okkar þurfti :) Held að þegar maður er í sambandi með einhverjum ekki frá sama landi sé þetta algjörlega nauðsynlegt skref, að kynnast heimalandi viðkomandi.

Annars er maður búinn að hafa það alveg frábært yfir jólin, borða sofa, lesa kúra og allt þetta tilheyrandi. Las alveg fráááábæra bók sem ég verð að mæla með við ykkur. Heitir Flugdrekahlauparinn og kom út núna fyrir jólin. Held ég geti fullyrt að þetta sé ein besta bók sem ég hef lesið. Hafði mikil áhrif á mig. Gamlárskveldið var svo með rólegra móti en venjulega. Við vorum í sitthvoru lagi en ég fór heim eftir skaupið og var með Jesús og familíu að skjóta upp. Eftir á vorum við heima í rólegheitum og skoðuðum gamlar myndir. Ekkert djamm eða djús þetta árið ;)

Það heldur svo óðum áfram að fjölga hér á bæ....jájá dyrnar standa öllum opnar..hehe. Tengdó eru náttúrulega hérna í heimsókn og verða líklegast fram í mars. Svo í dag fluttist Sergio til okkar líka þar sem hann er byrjaður að leigja út sína íbúð. En það verður reyndar bara þangað til hann flyst aftur til Spánar um miðjan janúar. Svo já...innrás spænsku stórfjölskyldunnar er hafin..hahaha :D Ég lifi eins og blóm í eggi um þessar mundir þar sem tengdaforeldrar mínir eru með eindæmum umhyggjusamir.

En allavega...GLEÐILEGT NÝTT ÁR 2006

posted by Halla Sif @ 5:35 e.h.   2 comments

2 Comments:

At 18:50, Blogger Thora said...

Gleðilegt nýtt á skonsan mín.
Knús Þóra :)

 
At 20:59, Anonymous Nafnlaus said...

Takk fyrir árið 2005 sömuleiðis.
ég er eins og þú með gamlárskvöld.. er alltaf svoldið sad þetta kvöld og hugsa til baka og fæ alltaf tár í augun þegar sungið er nú árið er liðið.. og ALDREI það kemur til baka.. sniff sniff.. En árið 2006 verður gott:) promise ;)

 

Skrifa ummæli

<< Home


DC Templates™


Hallatala