mánudagur, janúar 23, 2006

Þjáningar

Fyrst maður ætlar að halda úti þessari bloggsíðu þá er alveg eins gott að reyna að virkja hana almenninlega og skrifa aðeins reglulegar :D

Ég hitti hana Vilborgu mína í kveld og átti stórgóða spjallstund með henni á veitingastaðnum Carpe Diem. Upp á síðkastið erum við nebbla farnar að dekra helv..mikið við okkur og fara út að borða í þessi alltof fáu skipti sem við hittumst. Nú..Carpe Diem varð sumsé fyrir valinu þar sem þeir eru inn á Worldfortwo lista og maður náttla alltaf opinn fyrir því að spara :D Ráðlegging: EKKI fara á Carpe Diem. Við vorum einu gestirnir allt kvöldið (okei...mánudagur en samt...sad but true) og maturinn bar þess merki um að hafa staðið inn í ísskáp frá síðasta mánudag :S Þjónninn hins vegar stórskemmtilegur og fær hann kredit fyrir það því ég get alveg vottað hversu leiðinlegt það er að þurfa að þjóna einu borði sem í þokkabót situr leeeeengi þegar maður gerði ráð fyrir að fara snemma heim af vaktinni ;)

Fór svo um helgina á Memoirs of a Geisha. Yndisleg mynd hreint út sagt. Er jafnframt nýbyrjuð að lesa bókina sem lofar öllu góðu. Jesús fór að hlæja að mér þegar hann sá hvað ég var að lesa og sagði að ég læsi ekkert nema bækur um fólk sem þjáist....og þá áttaði ég mig á því að það er rétt! Síðustu bækurnar á náttborðinu hafa ekki verið annað en sannar sögur af fólki sem hefur lifað af einhverjar hræðilegar lífsraunir, nasistapyntingar, óréttmæta fangelsisvist og þar fram eftir götunum. Ég veit ekki aaaalveg hvað það er en ég heillast af þessum frásögnum! Finnst nauðsynlegt að lesa um svona til að geta metið hvað maður hefur það raunverulega gott.

Núna er það hinsvegar ég sem er IN PAIN. Flest kvöld mín þessa dagana einkennast af spænskum myndum...sem jú er kannski allt í lagi, nema hvað að nú er eitthvað hryllilegt spænskt gamanLEIKRIT í tækinu um einhverja fávita sem tala ekki heldur mæma allt og jú..æpa líka! Er virkilega einhver í HEIMINUM sem fílar svona húmor!! Svona Chaplin-silent movie-spænskur hryllingur með prumpbröndurum inn á milli!! Ef ég heyri enn eitt fávitaöskrið þá verður það ég sem hleyp æpandi út. Ég ætla upp í rúm að lesa um sannar þjáningar japanskrar geishu!

posted by Halla Sif @ 11:52 e.h.   1 comments

1 Comments:

At 00:52, Anonymous Nafnlaus said...

Fávitaöskur hahahahahahahahah

See you in the bathhouse;)

Lena

 

Skrifa ummæli

<< Home


DC Templates™


Hallatala