Halla jeppakelling
Jæja...þá erum við bara búin að fjárfesta í nýjum bíl :) Í þetta sinn var það kallinn sem fékk að ráða, búinn að suða lengi um að fá að kaupa sér jeppling og loksins gat hann sannfært kellingu um að það væru ef til vill ekki svo vitlaus kaup. Ég hef nebbla lengi vel verið frekar laaaaaangt frá því að vilja kaupa mér jeppa...finnst jeppafólk oft svo endalaust frekt og tillitslaust í umferðinni svo ég var auðvitað búin að bíta það í mig að jeppi væri out of the question. En svo er minn náttla alltaf að fara í e-r veiðiferðir og svona þannig að okei...á meðan þetta er ekki STÓR jeppi...og jú ekki hvítur á litinn...haha.. þá mátti hugsa málið. En allavega þá erum við búin að kaupa eitt stykki Honda HRV á spottprís...e-r risaútsala í Heklu á notuðum bílum svo við slógum til. Bíllinn er fallega blár á litinn og er ég því afar ánægð með kaupin :) Því eins og allar konur vita (en fáir karlmenn skilja) skiptir liturinn á bílnum AÐ SJÁLFSÖGÐU mjög mjög miklu máli!! Hef svosem ekki hundsvit á bílum en mér skilst að þetta sé afskaplega góður kostur....og minn maður er auðvitað alveg í skýjunum yfir kaupunum! Ég var líka eiginlega alveg að gefast upp á bílatalinu undanfarinn mánuð....Jesús er nebbla þannig að hann vill svo innilega og af öllu hjarta fá mig til að skilja ALLA fídusana við bílinn eins vel og hann skilur þá...en það er bara ekki alveg að fara að gerast í þessu lífi.
Fórum á árshátíð á mánudaginn hjá Tapas barnum og fleiri veitingastöðum sem héldu hana saman. Fagnaðurinn var haldinn á Borginni og var þrælskemmtilegur. Fyrsta skipti í égveitekkiHVAÐ langan tíma sem ég fæ mér almenninlega í glas og DANSA :) Daginn eftir rifjaðist það upp fyrir mér af hverju ég nenni sjaldan að fá mér í glas núorðið :S Svo vann ég að sjálfsögðu í happadrættinu um kvöldið..hihi ;) Án djóks að þá vinn ég alltaf í svona happadrættum...og yfirleitt alltaf vinninga sem nýtast mér ansk...ekki neitt! Hérna um árið á árshátíð Tækniháskólans vann ég hótelgistingu fyrir tvo á Hótel Reykjavík. Þá vantaði mig kærasta til að fara með svo ég gaf miðann. Núna vann ég hinsvega ljósakort. Jeij! Er frekar fanatísk á svona ljós svo ég sé fram á að gefa þann miða líka :S
Góða helgi öllsömul

föstudagur, mars 10, 2006
3 Comments:
Við jeppafjölskyldan óskum ykkur til hamingju með jeppann... vitum af eigin malarvega reynslu að þetta er algjör snilld :)
Til hamingju með jeppann :D Nú hafið þið enga afsökun fyrir að komast ekki að heimsækja mig á fjöll í sumar!!!
Já þetta var semsagt Theó sem ritaði síðasta komment
Skrifa ummæli
<< Home