föstudagur, mars 17, 2006

Hrópandi mótsögn

Jamms við Íslendingar erum held ég oft í alveg hrópandi mótsögn við sjálfan okkur. Er alveg að pirra mig í tætlur á liði sem kemur til okkar, kaupir eina gosflösku og ætlar svo að fara alveg yfir um þegar það þarf að borga 230 kall fyrir flöskuna. Okei...ekki ódýrt ég veit...en þetta er KAFFIHÚS for crying out loud!! Ef þú vilt ódýrt þá er Bónus bara alveg við HLIÐINA..svo farðu þangað grasasninn þinn ef þú vilt ódýrt gos!! Nei vitiði ég er orðin alveg gargandi pirruð á þessu kvarti því þetta er meira segja í ódýrari kantinum miðað við gos á öðrum kaffihúsum. Og við seljum þetta í gleri en ekki úr e-u dæluógeði! Já ég segi mótsögn vegna þess að þeir sem kvarta eru oftar en ekki gellur, með gelneglurnar og rándýrt lookið á hreinu svo hvernig í ósköpunum hafa þær efni á að kvarta yfir einu kóki!?! Aldrei myndu þessar gellur t.d fara inn í Karen Miller, máta kjól og snappa svo af því að hann kostar 50þúskall. Neibb...þá er maður náttla kominn með cheap stimpil á sig! En þegar málið snýst um eitthvað eins lítið og eina gosflösku þá er málið annað. Þá er fólk komið inn á svið sem það "má" vera nískt á! Æjji fólk er fíbbl :(

GOSH...held að málið sé alveg að fara í frí bara :):) Hvíla sig smá á fólki! Þegar maður er að vinna í þessum þjónustugeira koma einfaldlega bara stundum svona tímabil þar sem maður á virkilega erfitt að hemja sig gagnvart "erfiðum" kúnnum. Svo að.....Barcelona here we cooome...ekki á morgun heldur HINN :D:D Krosslegg þó enn fingurnar um að ekkert fari úrskeiðis hvað varðar vaktirnar en er annars farin að hlakka obbó mikið til. Komum svo aftur heim þann 27.mars.

Þannig að ég segi bara: Hasta la proxima :)

posted by Halla Sif @ 8:37 e.h.   2 comments

2 Comments:

At 15:30, Anonymous Nafnlaus said...

hey já...svo er ég líka með eitthvað bull blogg...
http://beggapope.blogspot.com

Begga T....flækja.

 
At 09:24, Anonymous Nafnlaus said...

hola chicos... jesus hvad ég skil tig med tetta fólk!! típískt svona lid sem ad faer sér bara vatn og tímir ekki ad lifa....en fer svo í karen millen og kaupir sér föt á radgreidslum!!! já que tipico de islandia.....alveg íslenskt....heyrdu var farid til Barcelona??? hefdud átt ad kíkja til Madrid líka....laetur allavega vita tegar tú kíkir til madrid og ef ekki tá kem ég til tín allaveg í sumar á kaffi Aroma og kaupi mér kók í gleri og vid spjöllum:)
knús
Ella madrid

 

Skrifa ummæli

<< Home


DC Templates™


Hallatala