fimmtudagur, apríl 06, 2006

Rúmliggjandi bloggari

Þá er maður kominn heim í heiðardalinn....og bara lagstur í rúmið...hnuss >:( Einhver leiðinda flensa náð bólfestu í mér svo búin að vera gjörsamlega ónýt og rúmliggjandi alla vikuna! Grenj...

Barcelona ferðin var náttla bara snilld. Vorum alveg einstaklega heppin með veður, fengum fínan skammt af sól og vorveðri og sveimér að manni hafi ekki bara tekist að endurlífga eitthvað af litarfrumunum. Svo kom maður heim í kulda DAUÐANS...ég sver það....held að við höfuð akkúrat hitt á kaldasta og vindasamasta dag ársins. En allavega þá var þessi ferð bara akkúrat eins og við vildum hafa hana...ekkert of plönuð, ekkert stress og engar brjálaðar skoðunarferðir. Röltum alveg endalaust mikið um miðbæinn, upp og niður Römbluna örugglega fimmhundruð sinnum og eyddum miklum tíma í gamla gotneska hverfinu. Ohh ég elska svona litlar þröngar götur með allar þessar litlu sjarmerandi búðir!! Vorum mikið í því að leita uppi góða katalónska veitingastaði og borðuðum gjörsamlega á okkur gat!! Ég náttla missti mig í Crema Catalana....fyrir ykkur sem ekki vita þá er það Créme Brulée á spænska vísu, svona vanillubúðingur með brenndum sykri ofan á...nammmmmm. Alveg einstaklega fitandi og gott. Nú er bara að læra að gera það sjálfur, búin að gera eina tilraun sem fékk falleinkunn :S

Við gerðumst reyndar svo menningarleg að fara á eitt safn þarna úti...Egypska safnið. Búið var að mæla með því við okkur og einhver var meira að segja búinn að segja mér að þetta væri talið 3ja merkilegasta safn íEvrópu...sem er náttla bara rugl því safnið er pínulítið og bara alls ekkert merkilegt. Allavega...furðuleg reynsla sem við urðum fyrir þar. Erum næstum því búin með túrinn þegar safnvörðurinn kemur til okkar og hvíslar að Jesús: "Bara svo þú vitir það..þetta er allt feik" "Meirhlutinn af þessu drasli er bara endurgerð...nánast ekkert hér inni sem er frá tímum Egypta" Svo fór hann að segja okkur að eigandinn hefði keypt þessa örfáu muni sem ekki voru feik á svartamarkaði. Okei...sjarminn ALVEG farinn af þessu!! Gaurinn varð svo alveg heví vandræðalegur eftir á þegar hann fattaði að kannski hefði hann talað aðeins af sér og bara "heyrðu...þið segið engum frá þessu er það....nefnið mig ekkert á nafn er það!!" Virtist reyndar alveg kexruglaður svo kannski maður ætti ekkert að taka þessi orð of trúarleg en spáiði í þessu! Maðurinn vinnur sem safnvörður og er í því að uppljóstra að helmingur safnsins sé feik!!

Ætla að reyna að setja inn myndir frá ferðinni. Eitthvað verður maður að reyna að drattast til að gera í þessu sleni. Læt vita þegar þær koma inn. Set hérna inn eina af stemningunni í eldhúsinu hjá tengdafjölskyldunni :) Jesús, Carmen, Sergio og tengdamamma

posted by Halla Sif @ 2:03 e.h.   4 comments

4 Comments:

At 17:39, Anonymous Nafnlaus said...

Hey Hollulingur!!!! Vohohoho! Vid sjaumst eftir nokkra daga! JEIJ!

Ferdin thin hljomar otrulega vel:) Eg hlakka til ad sja myndir:):):):)

Knuuuus! Bara

 
At 21:09, Anonymous Nafnlaus said...

Hellú lasnilingur, kom einmitt að heimsækja þig í dag en hitti Lilju Rut bara í staðinn :) þurfum að fara að sjást sæta :)

 
At 13:51, Anonymous Nafnlaus said...

Játs ég veit það. Spurning kannski um að slá tvær flugur í einu, kíkja í besög til þín í KÓPAVOGINN..hehe...og sjá hvað Guðrún er búin að stækka :D

 
At 23:40, Anonymous Nafnlaus said...

Já þú verður að fara að sjá snúllu... hún er orðin geðveikt stór, komin með tönn og allt ;) hehe

 

Skrifa ummæli

<< Home


DC Templates™


Hallatala