sunnudagur, maí 07, 2006

Hækkandi sól og sumarylur

Ákvað að fríska aðeins upp á lúkkið á síðunni minni í tilefni af hækkandi sól. Var heillengi að dunda mér við þetta og skemmti mér hið besta. Alltaf gaman að hleypa sköpunargyðjunni aðeins út.

Átti annars alveg heví næs dag í dag. Hann byrjaði með löngum göngutúr meðfram sjónum niður í bæ, þar sem ég átti brunch deit með Hófí vinkonu á Café París. Náðum að vísu ekki sæti í sólinni sem kom þó ekki að sök því ég hafði gaman af því að skoða nýju innréttingarnar þar á bæ. Ósköp svipað svosem og lunginn af kaffhúsum Reykjavíkur, ekkert sérlega franskt lúkk á þessu lengur en jújú voða töff svosem. Eníhú...þá átum við þessar líka ljúffengu crépes og fáruðumst aðeins yfir vægast sagt ÓHÓFLEGU verði á bakkelsi staðarins. Halló! 290 kall fyrir kleinu á stærð við baun...

Svo vorum við Jesús alveg ótrúlega dugleg og tókum hjólin okkar í gegn sem greyin fóru svoldið illa á því í vetur út í kuldanum. Maður býr nebbla ekki svo vel að hafa góða geymslu :S Komum okkur fyrir út í garði í góða veðrinu og hreinsuðum, smurðum og skröpuðum ryð af. Nú á sko að fara að taka á því á hjólinu í sumar, ónefndur betri helmingur þarf nauðsynlega að fara að koma sér í betra form ;) Við vorum nebbla svo asskoti dugleg alltaf a hjólunum þegar við vorum nýbyrjuð saman. :D Þá áttum við ekki bíl og hjóluðum bæinn endilangan :) Vorum þá að vinna á Tapas barnum og hjóluðum oft heim eftir vinnu á nóttunni..hihi :D Alveg spurning um að fara að taka það upp aftur og spara í bensíni.

Deginum lauk svo með fyrsta grilli sumarsins. Já það mættu fleiri dagar vera í þessum dúr. Merkilegt hvað sól og smá hiti gerir fyrir mann. Að mar tali nú ekki um mannlífið sem gjörsamlega rífur sig upp á svona dögum.
Hilsen
Hallatalan

posted by Halla Sif @ 10:33 e.h.   1 comments

1 Comments:

At 14:18, Anonymous Nafnlaus said...

Ahhhhhhhh. Lovely... Langar í svona kósý dag líka;)

Knús til þín og þinns manns! :*

Miss Rocket

 

Skrifa ummæli

<< Home


DC Templates™


Hallatala