It´s a wonderful day
Ohhh hvað það er yndislegt að vakna þegar það er svona frábært veður úti! Vorið er gjörsamlega komið og ég er í algjöru sumarskapi, á frí og ætla svoleiðis að njóta mín. Við Jesús tókum daginn snemma og fórum út í garð að vinna :D Hann reyndar meira en ég því ég held því fram að ég hafi overdósað á garðyrkju þau 5 sumur sem ég vann í Kirkjugörðunum í den...Svo gafst ég nú endanlega upp þegar risastór dauð vespa datt actually ofan á mig úr háloftunum. Ógeðslegt.
Lítið planað um helgina, ætlum að bjóða Miguel og Lorenu í mat á morgun. Eða réttara sagt, ætlum að fá afnot af fondue pottinum þeirra og hafa ostafondue og rauðvínsfiestu :Þ Jummí...Svo verður bara unnið upp í Kringlu eins og flestaðrar helgar og hugsanlega reynt að komast eitthvað áfram með bókhaldið í fyrra. Nú fer að líða að ársreikningsskilum og ég er að möglast í gegnum afstemmingar síðasta árs og annað álíka skemmtilegt. Og því miður virðist ekkert vera að stemma hjá mér :S
Bið annars að heilsa ykkur í bili og góða langa helgi :D

föstudagur, apríl 28, 2006
3 Comments:
mmm....fondú...það minnir mig á að kaupa mér eitt stykki svoleiðis græju áður en ég fer heim!
Eigum við svo ekki að stefna á "systkina-reunion" í sumar??!!
begga.
Júhú...endilega :D Væri alveg frábært að hittast og taka smá öppdeit á hemm....síðustu árum ;)Svo langar mig svo geðveikt að sjá litla krúttið hans bróður okkar!!
já mig líka, hef bara séð hana einusinni þegar hún var pínkupons:)
begga.
Skrifa ummæli
<< Home