Þá eru þýskararnir mínir farnir í tripp kringum landið og við hjúin orðin ein í kotinu...FINALLY!!! Ekki að það hafi verið leiðinlegt að hafa Susann í heimsókn, þvert á móti. Alveg meirháttar að hitta hana loksins og gaman að catcha upp eftir svona langan tíma. Hitt er annað mál að það er ágætt að geta horfið aftur til einkalífsins og eins og faðir minn komst svo skemmtilega að orði um daginn: Striplast um þegar maður vill :D Jepps...þar hefur hann svo sannarlega rétt fyrir sér.
Við skemmtum okkur annars alveg frábærlega þessa daga með Þjóðverjunum. Þau komu þrjú saman og alveg stórkostlega skemmtileg öll. Héldum smá grillpartý núna á sunnudaginn sem var í leiðinni kveðjupartý fyrir vin hans Jesús. Ég hef ekki skemmt mér svona vel í lengri tíma enda vel dugleg í rauðvíninu. Okkur tókst meira að segja að borða úti þrátt fyrir skítakulda. Daginn eftir tókum við okkur bæði frí frá kaffihúsinu og tókum Þjóðverjana í allsherjar túristarúnt um Reykjanes. Jesús þekkir þetta svæði eins og lófann á sér svo við fórum óhefðbundnar all terrain leiðir á nýja kagganum:D Stoppuðum að sjálfsögðu í Bláa Lóninu og borguðum þar litlar 1400kr per mann. Þeir í lóninu mega nú eiga það að þjónustan er nú langt um betri en í den, maður getur meira að segja pantað sér ís og kokteila út í lón en samt...vá!! Kostaði þetta ekki 800kall fyrir stuttu?? En við áttum annars alveg þrælskemmtilegan dag og gott að komast svona aðeins út úr bænum. Set inn myndir við tækifæri þegar ég fæ linkinn á myndasíðuna til að virka :S
fimmtudagur, júní 01, 2006 |

fimmtudagur, júní 01, 2006
1 Comments:
vó þetta er sko tryllitæki!!! Ekkert annað dugar fyrir T....flækjur.
begga.
Skrifa ummæli
<< Home