Eurovision og fleira...
Það er náttla ekki normalt hvað það er kalt úti. Ég er að þrjóskast við og ætla EKKI í vetrarúlpuna mína enda líka komin með hor í nös og tilheyrandi. Kræst hvað maður verður stundum pirraður á skítaveðrinu hérna! Við Jesús létum okkur dreyma um það í morgun hvenær og hvort við gætum flutt til Spánar...
Fór í gær í hið árlega Euro partý Klúbbsins. Assi er auðvitað bara snillingur þegar kemur að því að skipuleggja svona partý. Fórum að sjálfsögðu í lagaleikinn og stigaleikinn sem mín bara rúllaði upp með sænska laginu :D Maður hélt nú reyndar með Finnunum og mægod hvað mér fannst frábært að þeir skuli hafa tekið þetta. Evrópa er greinilega ekki eins húmorslaus hvað varðar keppnina og maður hefði haldið. En sjálft lagið er reyndar líka algjör snilld og þeir áttu þetta innilega skilið. Ég var nú að heyra það að einn meðlimurinn væri með bráðaofnæmi fyrir gúmmí..haha...hann þurfti því að fá sérstakan gúmmífrían búning manngreyið.
Í svona kulda getur maður ekki annað en farið að bíða með óþreyju eftir sumarFRÍINU. Já við erum á leiðinni til Kanarí skötuhjúin í viku. Tilefnið er nú það að hann faðir minn verður sjötugur í júlí og þau mamma ætla að bjóða hele familien með sér út. Þannig að við ætlum að liggja þarna eins og skötur á ströndinni fyrir framan SHERATON FIMM stjörnu hótelið (já það má ekkert minna vera fyrir svona stórafmæli..hehe) og fagna þessu saman :) Ferðinni er haldið á nýjustu eyjuna í túristabransanaum, Fuerteventura. Sú eyja er víst næst Afríku og þýðir nafnið "sterkur vindur". En það ætti þá a.m.k að vera hlýr Sahara vindur...ekki norðangarri frá Íshafinu eins og hér >:(
Næsta laugardag fæ ég heimsókn frá Þýskalandi. Susann vinkona mín sem ég kynntist í Alicante ætlar að koma til Íslands ásamt nokkrum vinum og vera hjá okkur í nokkrar nætur. Ég hlakka endalaust mikið til enda komin tæp þrjú ár síðan við sáumst síðast :) Þá þurfa sumir einnig að flytja út frá okkur til að losa pláss og er það mikið gleðiefni fyrir mig :D haha...þið skiljið sem vitið ;) Hótel Halla góðan dag ;)
Hef þetta ekki lengra að sinni.

sunnudagur, maí 21, 2006
4 Comments:
Oh svekkjandi að missa af þessum mögnuðu Júrópartýum alltaf hreint! Þú getur prísað þig sæla að vera ekki á Húsavík þessa dagana ef þér finnst kalt því hér kyngir niður snjó :/ Sannur janúarfílingur!!
Þetta var semsagt ég sem var að kvitta...
Ojjjjjj en ÖMURLEGT! Sendi mína allra bestu strauma yfir til þín um hlýrra veður :)
hehehehe... Er fullbokad hja ther i sumar, Halla? Hef heyrt svo godar sogur af husnædinu! hehe.
Er annars i minni elskulegu DK nuna. Looooving it! Vonandi hefur hlynad hja ykkur:) Eg ætti kannski ekki ad monta mig, en her er sol og blida... hehehehe.
Sjaumst fljott elsku Halla min:)
Thin Bara
Skrifa ummæli
<< Home