þriðjudagur, júlí 04, 2006

Sveitarómantík


Það er mikil bloggleti í gangi þessa dagana. Löngu tímabært að skella inn einni færslu en of mikið búið að vera að gerast til að maður geti talið allt upp. Félagslífið er í blóma þessar vikurnar sem er hið besta mál.

Við skötuhjúin erum nýkomin úr stuttu mótorhjólatrippi þar sem við áttum 2 alveg yndislega daga saman í sveitasælunni. Vorum að fagna 3ja ára afmæli í gær og fórum í því tilefni í okkar fyrstu "alvöru" mótorhjólaferð saman, með tjaldi og öllum græjunum. Höfum oft áður farið í styttri ferðir á hjólinu en aldrei áður ekið þetta langt saman og gist. Keyrðum til Víkur í Mýrdal og gistum þar á tjaldstæðinu í brjálaðri rigningu og roki. Vöknuðum hinsvegar upp við heiðan himinn og vorum svona líka heppin með veður þann daginn. Keyrðum svo heim í gær og nutum veðursælunnar og útsýnisins í botn. Það er einfaldlega geðveikt að keyra um sveitir landsins á hjólinu, maður fær náttúruna beint í æð og nýtur ferðalagsins á svo allt annan hátt en í bíl. Erum strax farin að plana næstu ferð, spurning hvort við látum verða af Evrópureisunni okkar næsta sumar. Þá væri planið að keyra um Spán, upp til Frakklands og Þýskalands, Alpana og niður aftur til Spánar.
Skelltum okkur svo út að borða í gær á La Primavera sem toppaði daginn algjörlega.

Svo er bara vika í að maður leggist í sólina á Fuerteventura. Hlakka til að gera ekki neitt í heila viku og láta dekra við mig á þessu brjálaða hóteli sem við verðum á. Spurning hvort þetta er eins mikið rokrassgat og látið er af ;)

posted by Halla Sif @ 1:55 e.h.   3 comments

3 Comments:

At 16:33, Anonymous Nafnlaus said...

Þið takið ykkur virkilega vel út í göllunum! :) Til hamingju með afmælið ykkar, þið eruð svo sæt :)

 
At 23:12, Anonymous Nafnlaus said...

Oh huggulegt hjá ykkur! Gisti einmitt í viku á tjaldstæðinu á Vík um árið í brjáluðu roki og rigningu - agalega huggulegt verð ég að segja ;). Um að gera að láta Evrópureisuna verða að veruleika og koma og heimsækja mig í kofann okkar í Alpana :D

 
At 21:10, Anonymous Nafnlaus said...

úúúúú já!!! Ég myndi sko ekki afþakka það :D Er líka farið að langa aftur til La France. Og ALPARNIR maður...ohhhh...örugglega ÆÐI!!

 

Skrifa ummæli

<< Home


DC Templates™


Hallatala