Farin og komin aftur...
Komin heim aftur sólbrún og sælleg eftir yyyyyndislegt frí á Kanarí. Maður gerði nú ekki mikið annað þessa einu viku en að liggja eins og skata í sólinni, borða, sofa og borða meira. Það sem stóð upp úr ferðinni var sjálft hótelið, get sagt það með sanni að ég hef aldrei gist á svona rosalega glæsilegum stað. Morgunverðurinn var endalaust hlaðborð af kræsingum, herbergin voru eins og svítur og maður var trítaður eins og kóngur. Enda lifðum við eins og blóm í eggi þarna og fórum lítið út fyrir veggi hótelsins :D Sjálf eyjan er reyndar ekkert spes svo það var eins gott að hótelið stóð fyrir sínu, endalaus eyðimörk af sandi og grjóti og lítið að sjá. Alltaf vindur þarna svo þetta er eins og Ísland...20 gráðum heitara!Leigðum reyndar bíl í einn dag og fórum í skoðunarferð út í "Isla de lobos" sem er óbyggð eyja rétt fyrir utan norðurströnd Fuerteventura, með kristaltærum sjó og fallegum ströndum. Í alla staði var þetta bara meiriháttar frí og afslöppun og gaman að geta fagnað öll saman afmælinu hans pabba á þennan hátt. Svo fengum við einnig heimsókn frá Tenerife, en Rafael vinur hans Jesús sem býr þar kom yfir og var með okkur í nokkra daga. Það var auðvitað alveg frábært.
Og nú er maður kominn aftur inn í blessaða Kringluna sem er tómara en allt tómt þessa dagana. Enda ekki skrítið...ekki myndi ég nenna að vera hérna inni núna ef ég væri ekki að vinna.
Æjjjjjiiii...það versta við að fara í frí er að maður er aldrei tilbúinn til að koma heim aftur í daglega amstrið. Núna langar mig mest til að selja staðinn og flytjast til útlanda um óákveðinn tíma. Hver veit nema að maður láti verða af því innan skamms..!?! Ef það væri ekki svona erfitt að fá vinnu og húsnæði á N-Spáni værum við farin í gær.
Annars er ég nú reyndar að fara í Háskólann í haust!! Já...langaði allt í einu að fara aftur í skóla að læra eitthvað SKEMMTILEGT svo ég skráði mig í spænsku og mannfræði :) Spænskuna langar mig að taka til að ná enn betri tökum á málinu, auk þess sem ég held að það væri ekkert vitlaust að næla sér í gráðu í faginu upp á það að fá vinnu úti seinna meir. Mannfræðina ætla ég svo að taka sem aukafag einfaldlega af því að ég mér finnst hún áhugaverð. Ég hlakka allavega bara til að fara aftur í nám...held að ég hafi líka gott af að fá smá tilbreytingu frá afgreiðslustarfinu. Það kom allavega ekki til greina að fara í meira tengt viðskiptafræði. Ef ég ætla mér í skóla aftur þá skal það verða eitthvað aðeins meira við mitt hæfi ;)
Bið að heilsa ykkur í bili og vona að þið fáið tækifæri til að njóta sólarinnar. Skelli hérna inn tveimur myndum. Held ég þurfi annars að fara að skipta um myndasíðu því ég fæ hana ekki til að virka :S

Þarna uppi er mín á svölunum í Sheraton dressinu ;) Hele familien og Rafael

fimmtudagur, júlí 20, 2006
3 Comments:
Mmmm... huggulegt frí hjá þér! Sé að Lena á eftir að njóta sín í botn hihi ;). Frábært hjá þér að fara aftur í skóla og það í e-ð sem þú hefur mikinn áhuga á. Mæli með að taka bara nóg af BS-gráðum haha og BARA það sem er skemmtilegt!!
Kv. Theó
Vó, geggjað flott þarna hjá þér baby... Þetta hlýtur að hafa verið æææði!
Finnst þú coolust að vera að fara í háskólann. Þú átt eftir að fíla þig svoooo vel! ;)
Wave
Skrifa ummæli
<< Home