fimmtudagur, ágúst 10, 2006

Cumpleaños feliz....

Jæja þá er maður víst orðinn árinu eldri og vonandi eitthvað vitrari í leiðinni. Alltaf voða gaman að eiga afmæli finnst mér. Maður verður eitthvað svo meyr við að fá öll afmælis smsin og óskirnar :) Dagurinn var tekinn afspyrnu rólega, ég gaf sjálfri mér frí, smellti í eina köku og hafði það kósý heima. Svo kom nú bóndinn heim og eldaði þennan líka brjálaða kjúklingarétt í kvöldmat fyrir Hati sína. Familían kíkti svo aðeins í heimsókn en annars var kvöldinu eytt á rólega mátann upp í sófa. Dáðist að frammistöðu Magna í Rockstar. Ekki nóg með það að maðurinn syngi frábærlega þá er hann landinu til sóma með framkomu sinni. Og jeeminn hvað var krúttlegt að sjá fjölskylduna hans þarna í salnum :D

Bið að heilsa ykkur í bili.

posted by Halla Sif @ 1:46 e.h.   9 comments

9 Comments:

At 08:20, Anonymous Nafnlaus said...

TIL HAMINGJU MEÐ AFMÆLIÐ í gær :) Vei vei vei , ammli ammli!!!

Ég er alveg sammála, það er ótrúlega næs að eiga afmæli, svona kósítilfinning. Vonandi hafðir þú það gott á ammlidaginn og bara líka í dag hihi :D
þín Elva.

 
At 01:09, Anonymous Nafnlaus said...

Jmmmm! Gaman að eiga ammli:) tíhí. Gott að þú varst glöð með ammlidaginn!

Er alveg sammála með hann Magna. Ég er mjög stolt af honum. Kíki á hann á netinu:D Hann er voðalega flottur, algjör töffari;)

Knús your way babydoll!

 
At 15:26, Anonymous Nafnlaus said...

hey til hamingju með afmælið...um daginn!!

Verðum að fara hittast yfir kaffibolla bráðum!

 
At 15:28, Anonymous Nafnlaus said...

já þetta var ég, Begga T....flækja.

 
At 23:26, Anonymous Nafnlaus said...

Takk allar saman :)

Já granni við þurfum endilega að hittast yfir kaffi og ræða hverfismálin..haha! Náttla bara tvö hús á milli

 
At 21:12, Anonymous Nafnlaus said...

Já ákvað bara að commenta á þetta hjá þér...vissi nú ekki fyrr en bara í síðustu viku að þú værir með svona blogg í gangi og búin að vera með síðan einhverntíman í APRIL 2005 já þú ert sannarlega þögul sem gröfin ég sagði öllum frá minni bloggsíðu bókstaflega öllum en allavega vildi bara segja þér að þú ert uppáhaldsfrænka nr 1
Elska þig Lilja

 
At 21:25, Anonymous Nafnlaus said...

ahhhhhhh takk :):) Ennnnnn...ég ég verð nú að leiðrétta þig hérna vegna þess að ég frétti það frá mömmu þinni á sínum tíma að þú værir með blogg...og hananú!! :D haha

 
At 13:55, Anonymous Nafnlaus said...

til hamingju med afmælid rúsínan tín:) bara slakad á afmælinu.....var mikid hugsad til þín um helgina, var á Feríunni í Malaga...OLE OLE..... hasta pronto guapa kveðja Elín

 
At 03:49, Anonymous Nafnlaus said...

tIL HAMINGJU MEÐ AFMÆLIÐ.... Halla mín og gama að fylgjast með ykkur Jesus... þið eruð svomikið krútt það verður gaman að sjá ykkur aftur
kv Linda og fjölskylda

ps Mark biður að heilsa

 

Skrifa ummæli

<< Home


DC Templates™


Hallatala