Bíla...bloody...blóðpeningur
Í fréttum er þetta helst:
Betri helmingurinn fór í veiðiferð í vikunni og ætlaði aldeilis að láta reyna á krafta Hondunnar. Hann er nefninlega svo viss í sinni sök að bíllinn sé jeppi en ekki jeppLINGUR og vill meina að við getum krúsað yfir hvaða á sem er. Nú jæja...það fór ekki betur en svo að Honda litla hreinlega örmagnaðist eftir að bóndinn keyrði yfir lítinn LÆK á henni og fór að gefa frá sér skuggalegt hljóð. Ég fór því með litlu á verkstæði í morgun.
Það kom í ljós að við skötuhjúin erum orðin heldur betur JÖFN í bílatjóni. Eða ekki kannski jöfn heldur frekar mjög svo ójöfn þar sem Jesús hefur náð stórlegum yfirburðum. Í ljós kom að greyið litla hafði fengið vatn inn á vélina og kostar það ekki 20...ekki 30..ekki 100 heldur nálægt 200ÞÚSUND krónum í viðgerð!!! Geri aðrir betur. Við skulum því til gamans taka saman bifreiðaútgjöld ársins fyrir utan bensín:
1) Halla skemmir dekk = 12.000
2) Jesús fær sekt á mótorhjólinu = 30.000
3) Jesús bleytir vél = 200.000.
Þetta gera samtals 242.000 kr en fyrir þann pening gætum við farið í mánaðarreisu til Spánar.
Nú er það ekki ég heldur bóndinn sem er settur í straff og það heeeeelv..langt ;) Svo eru það bara núðlur og vatn út árið... :S

miðvikudagur, ágúst 02, 2006
3 Comments:
heyrdu....sko.......thetta voru bara mistök,ekki vera svona vond.Thetta var ekki of stór á,ég keyrdi bara pínu hratt.Hver sem er getur lent í thessu vanda.Og thu ert ekki búin ad reikna í thessi tölu rispur sem thu gerdir og vid erum ekki buin ad laga!!
elska thig samt
Vó þetta er nú meira bílavesenið á ykkur skötuhjúum ;) Bara fá sér almennilegan jeppa í svona áryfirferðir ;)
hahahaha.....vinur minn komst reyndar langleiðina inn í Mörk á lítilli Lödu, en hún var líka farin að grenja og að lokum varð að tjasla henni saman með teipi svo að við kæmumst aftur heim ;) En vá hvað mér finnst frábært að þú sér að skella þér í skóla í haust, sérstaklega í mannfræðina sem nú meira bara svona hobbí heldur en nám sko hihihi.....er ekki frá því að ég öfundi þig pínu af því að vera að fara aftur að læra....það blundar alltaf í manni pínu lærupúki :D
Skrifa ummæli
<< Home