Reitt blogg...
KRÆST...er það virkilega nauðsynlegt fyrir styrktarfélag lamaðra og fatlaðra að senda manni GREIÐSLUSEÐIL í heimabankann til að maður styrki þá!!!! Finnst þetta óþolandi dónaskapur og GLÆTAN að ég borgi krónu í þetta félag fyrir að nota svona aðferðir. Allt í lagi að hringja í mann, hringja dyrabjöllunni eða hvaðeina...en að senda manni helv...greiðsluseðil í heimabankann finnst mér of langt gengið!! Ok..að vísu merkt sem valgreiðsla en skiptir ekki máli. Sama hvaða góðgerðarsamtök/félag málið snýst um þá neita ég að styrkja svona hrægamma.
Eníveis...langt síðan ég hef bloggað...ænó. Bara búið að vera mikið að gera, bæði í vinnunni og skólanum og svo náttla bókhaldinu sem við erum reyndar nýbúin að skila af okkur...júhúúú....rúmum mánuði of seint en betra er seint en aldrei.
Okei...talandi um hrægammastarfssemi þá fengum við eigendurnir greiðsluseðil í pósti í dag frá Reykjavíkurborg. Fyrir rúmum mánuði síðan fengum við nebbla reglubundna heimsókn frá heilbrigðiseftirlitinu (og þá er ég auðvitað að meina í Kringluna...ekki heim...haha), sem by the way rúlluðum upp en hvað haldiði!! Síðan er maður bara rukkaður um 35þús krónur!!!! Ertuaðgrínast í mér!!! VIÐ...þurfum að punga út heimsókn sem RÍKIÐ skyldar mann til að taka á móti!! Nógu assk...leiðinlegt að fá þessa heilbrigðiskalla til sín en að þurfa að BORGA undir rassinn á þeim það finnst mér náttla bara út í hróa! Svo spyr ég...HVAÐ nákvæmlega við þessa heimsókn réttlætir það að rukka heilar 35þús fyrir hana. Efast um að manngreyið hafi það mikið á tímann í þessu starfi...
Já það er sko dýrt að lifa í þessum heimi. Spurning hvort maður fari ekki bara að hækka öll verð hjá sér til að stemma stigum við svona óvæntum gjöldum?

þriðjudagur, október 31, 2006
0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home