Skólastelpa
Þá er maður bara byrjaður í námi aftur. Fór í fyrsta tímann í spænskunni í gær og leist bara þrusuvel á. Fyrsti tíminn var þó sá allra áhugaverðasti fyrir mig en það var menning, þjóðlíf og saga Spánar. Þar er tekið á bókstaflega öllu sem snertir spænska karakterinn og stiklað á því stærsta í sögu landsins. Áhugi minn var svo allsvakalegur að eftir tíma fór ég í Þjóðarbókhlöðuna og gerði það sem ég hef aldrei gert áður á mínum námsferli: Tók aukabækur til aflestrar um námsefnið. hehe..algjör sleikja ;) Það sem mér finnst líka svo einstaklega þægilegt við þetta nám eru öll einstaklingsverkefnin sem maður fær að gera. Á þeim þremur árum sem ég varði í Tækniháskólanum held ég að ég hafi gert nákvæmlega eitt slíkt verkefni. Allt hitt í hópum, sem út af fyrir sig er auðvitað mjög gott og lærdómsríkt en afskaplega þreytandi til lengdar. Endalaust streð um að finna tíma sem hentar öllum, finna orðalag sem allir eru sáttir við og endalaus pirringur yfir að koma sér ekki saman um hlutina. Jú...á endanum lærir maður að sjálfsögðu að vera team player sem er náttúrulega nauðsynlegt í nútímasamfélagi..en meeeeen...hvað ég er samt fegin að geta bara sest fyrir framan tölvuna á kvöldin og skrifað mína ritgerð í friði :) Jamms...eins og ég segi þá leggst þetta svaka vel í mig.

þriðjudagur, september 05, 2006
4 Comments:
já til lukku með að vera byrjuð í skólanum og frábært hvað þetta leggst vel í þig...sé þig alveg fyrir mér sem skólastelpu á ný. Nauðsynlegt að fara stundum útúr þessari skurn og gera e-ð nýtt :)...Allra allra fyrsta commentið mitt á bloggsíðuna þína...love sys xxx
hmmm ég er ekki frá því að ég öfundi þig pínu....fæ alltaf svona skólafiðring á haustinn.....og ég actually fíla þjóðarbókhlöðunna ;) Gangi þér vel, þú átt nú eftir að rúlla þessu upp þannig að njóttu bara :) Elva.
úú en spennandi! Ég segi það sama.. ég fæ smá skóafiðring á haustin..eeen ég fíla EKKI þjóðarbókhlöðuna ELVA!! hehehe... sérstaklega þar sem ég óverdósaði á henni í stúdentsprófunum... :) Eníhú.. alveg sammála með að fá að gera einstaklingsverkefni.. Kennó svipað og tæknó í þeim efnum.. eendalaus hópverkefni! Njóttu tímans vel esska..
hmmmmm ég segi að það sé kominn tími á eitt gott Höllublogg þetta er orðin mjög löng bið ég er orðin óþreyjufull!!!!!!!!
Lilja Rut:)
Skrifa ummæli
<< Home